Ferill 99. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1990. – 1060 ár frá stofnun Alþingis.
113. löggjafarþing. – 99 . mál.


Nd.

435. Nefndarálit



um frv. til l. um Samskiptamiðstöð heyrnarlausra og heyrnarskertra.

Frá menntamálanefnd.



    Nefndin hefur fjallað um frumvarpið og fékk á sinn fund til viðræðna um málið Hauk Vilhjálmsson frá Félagi heyrnarlausra, Gunnar Salvarsson, skólastjóra Heyrnleysingjaskólans, Helga Seljan og Ásgerði Ingimarsdóttur frá Öryrkjabandalaginu, Bryndísi Víglundsdóttur, skólastjóra Þroskaþjálfaskólans, og Valgerði Stefánsdóttur, táknmálskennara við Þroskaþjálfaskólann.
    Nefndin mælir með samþykkt frumvarpsins.
    Ragnhildur Helgadóttir og Ólafur Þ. Þórðarson voru fjarverandi afgreiðslu málsins.

Alþingi, 20. des. 1990.



Ragnar Arnalds,


form., frsm.

Birgir Ísl. Gunnarsson,


fundaskr.

Þórhildur Þorleifsdóttir.


Árni Gunnarsson.

Guðmundur G. Þórarinsson.